Ný sýn fyrir
hjarta Reykjavíkur

Kynntu þér nánar
Kvosin er hjarta Reykjavíkur og þar leynast einstök tækifæri. Með því að opna aðgengi að tveimur sögulegum byggingarreitum, tengja saman gönguleiðir og skapa ný skjólgóð almenningsrými getur Kvosin orðið enn sterkari miðpunktur borgarlífsins. Hér verður kynnt framtíðarsýn sem gengur út á að gera góða miðborg enn betri.

Kvosin HUGSUÐ sem ein heild 

Leiðin liggur í gegnum húsin

Kvosin hefur alla burði til að verða enn sterkari miðpunktur borgarlífsins. Með því að hugsa hana sem eina heild skapast grundvöllur fyrir samfelldri göngutengingu frá Austurstræti, yfir Hafnarstræti og alla leið að Tryggvagötu og höfninni. Ferðin verður hluti af upplifuninni – þar sem söguleg hús, verslanir, veitingastaðir og ný almenningsrými tengjast.

Þegar gönguleiðir verða skýrari og borgarrýmin opnari, þá eykst mannlíf, dvöl lengist og ný tækifæri skapast fyrir íbúa og gesti.

Yfirbyggt Hafnarstræti

Gata verður að áfangastað

Hafnarstrætið stendur í miðju alls þess besta sem miðborgin hefur að bjóða. Þar liggja vannýtt tækifæri.

Hugmyndin felst í að umbreyta götunni í skjólgóða göngugötu þar sem fólk gengur, dvelur og nýtur borgarinnar allan ársins hring. Glerþak myndar skjól án þess að taka frá götunni birtuna eða karakterinn. Á jarðhæðum opnast verslanir, kaffihús og veitingastaðir út að nýju göturými sem verður jafn aðlaðandi fyrir morgunkaffi, hádegisfund eða kvöldgöngu. Hafnarstræti verður þannig ekki aðeins leið á milli staða, heldur áfangastaður í sjálfu sér.

Suðurreitur

Leynigarðurinn á bak við bankann

Fáir vita að á bak við virðulega framhlið gamla Landsbankans leynist heilt port — lokað almenningi í heila öld. Nú verður breyting þar á.

Í miðju reitsins verður bjart og skjólgott almenningsrými þar sem glerþak skapar aðstæður til mannlífs allan ársins hring. Nýr aðalinngangur frá Pósthússtræti opnar reitinn fyrir öllum og leiðir gesti inn í hjarta hans. Á jarðhæð verða verslanir, kaffihús og veitingastaðir, en á efri hæðum atvinnu- og þjónustustarfsemi.

Með virðingu fyrir sögu húsanna fær þessi einstaki staður nýtt hlutverk sem opið borgarrými þar sem fólk hittist, dvelur og nýtur miðborgarinnar í skjóli fyrir veðri og vindum.

Norðurreitur

Nýtt torg undir glerhimni

Á Norðurreitnum er sama hugmynd útfærð og sunnan megin: garðurinn í miðju reitsins er yfirbyggður með gleri og opnaður öllum. Aðstæðurnar eru þó aðrar — reiturinn er stærri og þar er meðal annars Radisson Blu 1919 Hotel til húsa.

Torgið sem verður til í miðjunni stendur í alfaraleið, með gönguleiðum frá Hafnarstræti og Tryggvagötu og þar með leið niður að höfn. Á torginu mætast hótelgestir og heimafólk, og gróður og skjól gefa reitnum sinn eigin takt — samkomustaður sem lifir frá morgni fram á kvöld.

Einstakt tækifæri fyrir Kvosina

Fasteignafélögin Eik og Landsbyggð standa í sameiningu að þeirri framtíðarsýn sem hér er kynnt. Félöign eiga þær eignir sem ná yfir reitina tvo og hafa tekið höndum saman um eina sýn fyrir svæðið allt. Slík staða er um margt einstök, að heilir götureitir í elsta hluta miðborgarinnar séu á fárra höndum og að eigendurnir séu samstíga um að nýta það til framfara.

Félögin hafa lagt fram formlega fyrirspurn til Reykjavíkurborgar þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsyfirvalda til helstu hugmynda verkefnisins. Markmiðið er að kanna hvort skapa megi grundvöll fyrir áframhaldandi þróun í góðu samstarfi við borgina, með virðingu fyrir sögu staðarins og metnaðarfulla sýn á framtíð miðborgarinnar. Fyrirspurnin lýsir hugmyndunum, forsendum þeirra og þeim tækifærum sem þær geta skapað fyrir Kvosina og Reykjavík í heild.
Kynntu þér fyrirspurnina

Spurt og svarað

Verkefnið er í þróunarfasa og framkvæmdir eru fyrirhugaðar að hefjast á árunum 2026–2027, með áætlaða lokun á árunum 2028–2030. Nákvæm tímalína verður kynnt þegar hönnun og leyfisveitingar eru að fullu á rekspori.

Verkefnið er í þróunarfasa og framkvæmdir eru fyrirhugaðar að hefjast á árunum 2026–2027, með áætlaða lokun á árunum 2028–2030. Nákvæm tímalína verður kynnt þegar hönnun og leyfisveitingar eru að fullu á rekspori.

Verkefnið er í þróunarfasa og framkvæmdir eru fyrirhugaðar að hefjast á árunum 2026–2027, með áætlaða lokun á árunum 2028–2030. Nákvæm tímalína verður kynnt þegar hönnun og leyfisveitingar eru að fullu á rekspori.

Verkefnið er í þróunarfasa og framkvæmdir eru fyrirhugaðar að hefjast á árunum 2026–2027, með áætlaða lokun á árunum 2028–2030. Nákvæm tímalína verður kynnt þegar hönnun og leyfisveitingar eru að fullu á rekspori.

Finnur þú ekki þína spurningu?

Sendu okkur línu

Hafa samband

Bakhjarlar

Kvosin er þar sem Reykjavík hófst. Með nýju þróunar- og uppbyggingarverkefni Eikar fasteignafélags og Landsbyggðar í samstarfi við Batteríið arkitekta og Reykjavíkurborg stígum við stórt skref inn í framtíðina. Markmið er að endurvekja Kvosina, gera hana að lifandi, gróskumiklum áfangastað sem laðar að íbúa, hönnuði og gesti allan ársins hring.